Þekkir þú manninn með sixpensarann?

Lögreglan á Akureyri lýsir eftir vitni. Um er að ræða karlmann sem klæddur var jakka og sixpensara á göngugötunni í miðbæ Akureyrar aðfaranótt sunnudagsins 31. október um kl. 02:35.

„Ef þú telur þig vita hver maðurinn er máttu gjarnan senda okkur skilaboð á messenger eða koma við á lögreglustöðinni í Þórunnarstræti 13,“ segir í tilkynningu lögreglunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert