Umferðarslys við Sæbraut

Viðbragðsaðilar hafa verið kallaðir út vegna umferðarslyss við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar.  

Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu gat lítið greint frá slysinu að svo stöddu en sagði það hafa orðið við gangbraut þar sem fólk hafi verið á vespum. 

Uppfært klukkan 8.50:

Tveir hafa verið fluttir á slysadeild Landspítalans vegna slyssins, að sögn varðstjóra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert