Skipuleggjendur tónleika og viðburða á Íslandi hafa sent frá sér neyðarkall til stjórnvalda um að þrengja ekki enn frekar að viðburðahaldi á næstu vikum og mánuðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bandalagi íslenskra tónleikahaldara.
Þar segir að viðburðaiðnaðurinn á Íslandi hafi tekið á sig gríðarlegt högg í heimsfaraldrinum og að algert lífsspursmál sé fyrir tónlistarfólk og skemmtikrafta að komast aftur upp á svið og vinna vinnuna sína. Næstu vikur skipti sköpum í þessum efnum og að ljóst sé að ef meira verði þrengt að viðburðum muni það enda með ósköpum.
„Við sem hér tölum erum þess fullviss að við getum boðið fólki upp á örugga leið til þess að njóta menningar og skemmtunar á skipulögðum sitjandi viðburðum, í umhverfi sem er gerólíkt samkomum þar sem margir koma saman án sérstaks eftirlits,“ segir í tilkynningunni.
Númeruð sæti, grímuskylda og/eða hraðpróf í þeim tilvikum sem reglur kveði á um, eigi að tryggja það að viðburðir fari fram á öruggan hátt. Auk þess sé bólusetningarhlutfall þjóðarinnar nú þegar mjög hátt.
„Að því sögðu er það umhugsunarvert að yfirvöld hér á landi geri viðburðarhald erfiðara og flóknara í framkvæmd hér en víða í nágrannaríkjum okkar, með auknum kröfum um hraðpróf, fjarlægðartakmarkanir og hópamyndun. Endalaus óvissa, breytingar á sóttvarnarreglum og stefnubreytingar gera okkur ómögulegt að skipuleggja viðburði, með tilheyrandi kostnaði, taprekstri, áhættu og hreinni tímasóun.
Við viljum að sjálfsögðu standa saman á næstu vikum, virða sóttvarnir og fylgja þeim reglum sem okkur eru settar. En á móti viljum við að okkur sé sýnd sú virðing að dyrum menningarlífsins sé ekki skellt enn og aftur í lás og þeir viðburðir sem þó eru í boði, innan settra reglna, séu talaðir niður af yfirvöldum og slegnir af.“