200 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær en um metfjölda smita er að ræða á einum degi. Áður höfðu mest 178 greinst innanlands í fyrradag.
77 voru í sóttkví við greiningu. Átta smit greindust á landamærunum, þar af bíða tveir mótefnamælingar.
18 eru á sjúkrahúsi, þar af fjórir á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita stendur nú í 445,1 og hefur ekki verið hærra frá upphafi faraldurs. Nýgengi landamærasmita er 25,9.
Tekin voru 4.030 sýni, þar af 2.276 einkennasýni.
1.505 eru nú í einangrun vegna Covid-19. 2.365 eru nú í sóttkví.