Barnaþingi í Hörpu frestað

Í ljósi hertra samkomutakmarkana sem kynntar voru í dag og aukinna smita af meðal barna Covid-19 hefur umboðsmaður barna ákveðið að fresta barnaþingi sem átti að halda í Hörpu 18. og 19. nóvember.

Um 170 börn á aldrinum 11-15 ára höfðu skráð sig til þingsins auk fjölda fullorðinna. Stefnt er að því að halda barnaþingið snemma á nýju ári og verða dagsetningar kynntar um leið og þær liggja fyrir, að því er segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert