„Mér hefur ekki borist þetta bréf sem birt er þarna á facebook. Færslan mín er einungis kveðja til starfsfélaga til 27 ára og hefur enga merkingu umfram það,“ segir Magnús M. Norðdahl, lögfræðingur ASÍ, í samtali við mbl.is
Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður Eflingar, sagði í færslu á facebook fyrr í dag að hún hefði sent Magnúsi póst þar sem hún sagði hann meðal annars hafa gert ASÍ vanhæft til aðkomu að málum sem snerta kynbundið ofbeldi og áreiti, með því að setja athugasemd við færslu Tryggva Marteinssonar sem sagt var upp störfum hjá Eflingu í gær. Sólveig birti umræddan póst til Magnúsar í færslunni. Þegar mbl.is ræddi við Magnús hafði hann hins vegar ekki fengið póstinn.
„Ömurlegar fréttir kæri félagi. Á löngum ferli mínum í störfum fyrir þetta stóra stéttarfélag hefur við mig aldrei orði verið á þig hallað – þvert á móti,“ skrifaði Magnús við færslu Tryggva, sem þakkaði honum fyrir falleg orð.
Sólveig segir Tryggva hafa hótað sér ofbeldisverkum á heimili sínu og með orðum sínum hafi Magnús lýst yfir stuðningi og samúð við geranda í ofbeldismáli frammi fyrir almenningi. „Hótuninni fylgdi nákvæm útlistun á því hvernig hann hefði áður gert hótanir gegn meintum óvinum sínum að veruleika og útskýringar á því hvers vegna hann teldi að hann myndi aðeins hljóta skilorðsbundinn dóm yrði hann dæmdur vegna þess sem hann hugðist gera mér.“
Í bréfinu til Magnúsar segir hún ASÍ hafa tapað trúverðuleika sínum. „Stofnun sem felur karli með þín viðhorf og hugmyndir um hvað telst ásættanleg opinber framganga í slíkum málum stöðu æðsta lögfræðivalds hefur tapað trúverðugleika sínum. Enginn þolandi í kynbundnu ofbeldis- eða áreitnismáli getur treyst því að mál þeirra fái faglega eða hlutlausa meðferð af hálfu ASÍ meðan þú gegnir þar þeirri stöðu sem þú gerir.“