Stríður straumur hefur verið í Laugardalshöllina í dag þar sem verið að bólusetja fólk sem er eldra en 60 ára og þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma með örvunarskammti af bóluefni gegn covid-19.
1.200 manns mættu á fyrsta hálftímanum í morgun og hefur straumurinn verið nokkuð stöðugur í allan dag.
Að sögn Árna Friðleifssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem staðið hefur vaktina í höllinni í dag, hefur allt gengið vel hingað til
Bólusett verður næstu fjórar vikurnar frá klukkan 10 til 15 í Laugardalshöll á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum, en til stendur að boða um 160 þúsund manns í örvunarbólusetningu fyrir árámót.
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sagði í samtali við mbl.is í morgun að rennt væri blint í sjóinn með mætingu. Sjálf sagðist hún búast við um 8.000 manns á dag, eða 80 prósent mætingu.
Það fer svo allt eftir mætingu hvenær farið verður að boða aðra en forgangshópa í örvunarbólusetningu.