Tveir eru í öndunarvél

Frá Landspítalanum.
Frá Landspítalanum. Ljósmynd/Landspítalinn

22 sjúklingar liggja á Landspítala vegna Covid-19. Þar af eru þrír á gjörgæslu og tveir þeirra í öndunarvél. Meðalaldur þeirra sem liggja inni er 56 ár.

1.696 sjúklingar, þar af 466 börn, eru á Covid-göngudeild spítalans, að því er kemur fram í tilkynningu. 

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní síðastliðinn, hefur 181 verið lagður inn vegna Covid-19 á Landspítala.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert