11,5 milljónir hafa safnast með sölu á FO bolum sem renna óskert til verkefna UN Women í Mið-Afríku lýðveldinu. Bolirnir hafa fengist í verslunum Vodafone á unwomen.is og enn er hægt að nálgast þar boli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá UN Women.
Þar segir að á hverri klukkustund sé kona eða stúlka í Mið-Afríkulýðveldinu beitt kynferðisofbeldi.
„Talað er um Mið-Afríkulýðveldið sem gleymda ríkið þar sem staða íbúa er sérstaklega slæm í ljósi stöðugra átaka undanfarin ár. Í þessum átökum hafa nauðganir og kynferðisofbeldi verið notað sem stríðsvopn og glímir fjöldi kvenna og stúlkna við skelfilegar afleiðingar þess.“
UN Women veitir þolendum ofbeldis sálræna aðstoð og aðstoðar þá jafnframt við að sækja sér lækni- og lögfræðiaðstoð. Einnig veitir UN Women heilbrigðisstarfsfólki þjálfun við að bera kennsl á ummerki heimilisofbeldis og hvernig nálgast eigi þolendur.
„Við hjá UN Women á Íslandi eigum í einstöku samstarfi við Vodafone sem styðja við verkefni UN Women með þeim hætti að greiða fyrir framleiðslu á FO húfum og bolum undanfarin fimm ár. Styrkur Vodafone hefur gert UN Women á Íslandi kleift að senda yfir 70 milljónir til verkefna UN Women víðsvegar um heim nú fimm ár í röð. Við erum afar þakklát og stolt af samstarfi okkar við Vodafone sem sýnir þor og dug við að styðja við útrýmingu ofbeldis bæði hér á Íslandi og á heimsvísu. Einnig erum við gríðarlega þakklát öllum þeim sem hafa keypt FO bolinn og taka um leið skýra afstöðu gegn ofbeldi,“ segir Stella Samúelsdóttir,“ framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.