Ísland kjörið í framkvæmdastjórn UNESCO

Íslenska sendinefndin á aðalráðstefnunni: Guðrún Þorsteinsdóttir, Ragnar Þorvarðarson, Unnur Orradóttir …
Íslenska sendinefndin á aðalráðstefnunni: Guðrún Þorsteinsdóttir, Ragnar Þorvarðarson, Unnur Orradóttir Ramette, Elín Flygenring og Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ísland var kosið í framkvæmdastjórn Mennta-, vísinda og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í dag með yfirgnæfandi stuðningi á aðalráðstefnu stofnunarinnar sem nú stendur yfir í París. Innan Vesturlandahópsins voru Austurríki og Tyrkland einnig í framboði. Ísland hlaut flest atkvæði í kosningunni, eða 168 en 178 ríki greiddu atkvæði.

Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins.

Ríkisstjórnin tók ákvörðun um framboðið árið 2018 og hefur fastanefnd Íslands hjá UNESCO, utanríkisráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið sem og íslenska UNESCO-landsnefndin unnið síðustu ár að því að efla störf Íslands innan stofnunarinnar. Í framkvæmdastjórn sitja 58 ríki og er almennt mikil samkeppni meðal hinna 193 aðildarríkja UNESCO um sæti í framkvæmdastjórn, segir ennfremur. 

Stjórnin starfar með umboð frá aðalráðstefnu stofnunarinnar og ber m.a. ábyrgð á eftirfylgni ákvarðana,  greinir starfs- og fjárhagsáætlun stofnunarinnar sem framkvæmdastjóri leggur fyrir, leiðbeinir um verkefni og sinnir eftirlitshlutverki með þeim. 

UNESCO er sérstofnun SÞ sem hefur það að markmiði að stuðla að friði og öryggi í heiminum með því að efla alþjóðlega samvinnu í málaflokkum stofnunarinnar. UNESCO ber m.a. höfuðábyrgð innan SÞ-kerfisins á innleiðingu heimsmarkmiðs fjögur um menntun og er sú stofnun SÞ sem hefur sérstakt umboð til að efla tjáningar- og fjölmiðlafrelsi. Þá sinnir stofnunin margvíslegum verkefnum með áherslu á vísindi, menningu og menningararf og heldur m.a. úti hinni þekktu Heimsminjaskrá.

Nánar hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert