Heilbrigðisráðuneytið sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem því er neitað að ráðuneytið hafi ítrekað afþakkað liðsinni fyrirtækja sem hafi boðið hjúkrunarrými á grundvelli rekstrarforms þeirra félaga.
Tilkynningin var birt á vef Stjórnarráðsins í dag.
Í henni segir að því hafi ítrekað verið haldið fram í umræðum og yfirlýsingum að heilbrigðisráðuneytið hafi afþakkað liðsinni aðila sem hafi boðið fram hjúkrunarrými, bæði í formi reksturs og húsnæðis, vegna þess að ráðuneytinu hugnist ekki rekstrarform á hendi einaðila.
„Þetta er í öllum atriðum rangt,“ segir ráðuneytið en þar er sérstaklega vísað til Kastljóss í gær, „þar sem skilja mátti að á þriðja hundrað hjúkrunarrýma væru tilbúin til rekstrar hjá einkaaðilum ef ráðuneytið væri reiðubúið að semja við þá“.
„Fullyrt var að Hrafnistuheimilin væru tilbúin að taka við á annað hundrað öldruðum „í umönnun og búsetu“ og einnig að fyrir einu og hálfu ári hefðu verið boðin fram hjúkrunarrými fyrir 130 einstaklinga í Urðarhvarfi í Kópavogi. Hvoru tveggja er rangt.“
Heilbrigðisráðuneytið segir það rétt að Heilsuvernd hafi boðið ráðuneytinu húsnæði í Urðarhvarfi fyrir rekstur hjúkrunarrýma fyrir umfangsmikla öldrunarþjónustu. Sjúkratryggingar hafi átt í viðræðum við Heilsuvernd á þessu ári um nákvæmlega þau verkefni.
„Þessum viðræðum var sjálfhætt þegar eigandi húsnæðisins (sem er ekki fyrirtækið Heilsuvernd) lýsti yfir að húsnæðið væri ekki til ráðstöfunar fyrir verkefnið. Rétt er að taka fram að ráðast hefði þurft í viðamiklar framkvæmdir og breytingar á húsnæðinu áður en að hægt hefði verið að opna þar hjúkrunarrými fyrir aldraða og sem fyrr segir stóð það húsnæði ekki til boða þegar til átti að taka.“
Þá segir í tilkynningunni að fullyrðing um vilja og getu Hrafnistuheimilanna til að taka að sér á annað hundrað aldraðra sé „úr lausu lofti gripin“. Aftur á móti hafi heilbrigðisráðuneytið átt í góðu samstarfi við rekstraraðila hjúkrunarheimila og þar á meðal Hrafnistu, um leiðir til að fjölga hjúkrunar- og dvalarrýmum.
„Á gamla Sólvangi í Hafnarfirði verður á næstu vikum opnuð ný hjúkrunardeild fyrir 11 aldraða og eiga Sjúkratryggingar Íslands í viðræðum við Öldung hf. sem rekur hjúkrunarheimilið Sóltún í Reykjavík, um rekstur þeirra. Í gamla Sólvangi verða einnig opnuð í byrjun næsta árs 39 rými til skammtímadvalar og endurhæfingar fyrir aldraða.“
Þessu til viðbótar séu framkvæmdir nú í gangi við húsnæði Landspítalans á Landakoti vegna opnunar 30 nýrra endurhæfingarrýma.
„Einkaaðilar og sjálfseignarstofnanir sinna umfangsmiklum rekstri hjúkrunarheimila hér á landi og hafa gert til margra áratuga. Um uppbyggingu húsnæðis hjúkrunarheimila og rekstur þeirra gilda sömu lög, reglur og viðmið, hvort heldur sem í hlut eiga opinberir aðilar eða einkaaðilar. Heilbrigðisráðuneytið fagnar öllu frumkvæði sem rúmast innan laga og reglna og leitt getur til skjótrar fjölgunar hjúkrunarrýma fyrir aldraða,“ segir í lok tilkynningarinnar.