Lítill áhugi á nýjum kosningum

Flögulón í Skaftárhreppi. Hreppurinn samþykkti sameiningartillöguna með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.
Flögulón í Skaftárhreppi. Hreppurinn samþykkti sameiningartillöguna með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Ljósmynd/Haukur Snorrason

Takmarkaður áhugi virðist vera hjá þeim sveitarstjórnum á Suðurlandi þar sem íbúarnir samþykktu sameiningu í haust að fara í nýjar sameiningarkosningar. Frumkvæðið nú kemur frá sveitarstjórn Skaftárhrepps en þar var fyrri sameiningartillagan samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Sveitarstjórn Rangárþings ytra er að kanna vilja íbúa til sameiningar og þá hvernig sameiningu þeir vilja skoða, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Tillaga um sameiningu fimm sveitarfélaga á Suðurlandi var samþykkt af meirihluta íbúa í fjórum sveitarfélögum en felld í einu. 75% íbúa Skaftárhrepps sögðu já og sömuleiðis 51-52% íbúa Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Mýrdalshrepps. Aftur á móti sögðu 80% þeirra íbúa Ásahrepps sem þátt tóku nei.

Þarf nýja umferð

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum hefði sveitarstjórnunum fjórum þar sem sameiningartillaga var samþykkt verið heimilt að ákveða sameiningu, án Ásahrepps. Allar sveitarstjórnirnar höfðu hins vegar lýst því yfir fyrir atkvæðagreiðsluna að þær myndu ekki nýta þessa heimild. Þurfa því nýjar sameiningarviðræður og eftir atvikum ný atkvæðagreiðsla að fara fram. Sveitarstjórn Skaftárhrepps vildi láta reyna á það.

Bjarki Guðnason, oddviti Skaftárhrepps, segir að aðalástæðan fyrir frumkvæði sveitarstjórnarinnar sé sá afgerandi vilji sem íbúar þar sýndu til sameiningar. Hins vegar virðist takmarkaður áhugi hjá hinum sveitarstjórnunum og telur hann ólíklegt að gengið verði til nýrra sameiningarviðræðna í vetur. Stutt sé til kosninga til sveitarstjórna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert