Heilsuvernd, K!M Endurhæfing og Heilaheilsa, í samstarfi við NeckCare hafa opnað nýja hálsgreiningar- og höfuðáverkamiðstöð í Urðarhvarfi 14 í Kópavogi. Miðstöðin sérhæfir sig í greiningu og meðferð á hálsverkum og höfuðáverkum, og notar NeckSmart tækni frá íslenska tæknifyrirtækinu NeckCare.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá miðstöðinni.
Hálsverkir eru meðal algengustu stoðkerfisvandamála sem almenningur glímir við í dag og er jafnframt ein helsta ástæða þess að fólk sækir sér þjónustu til sjúkraþjálfara.
Kim De Roy, framkvæmdastjóri K!M Endurhæfingar, segir nýju miðstöðina koma til með að breyta því hvernig greining og meðferð á hálsverkjum fari fram.
„Grunnatriðið er að greina með hlutlægum hætti orsök vandamálsins og leiðbeina skjólstæðingum okkar á grundvelli greiningarinnar um rétta endurhæfingaráætlun. Sérfræðingahópur okkar er fjölþættur en í honum eru m.a næringarfræðingar, sjúkraþjálfarar og sálfræðingar. Það hefur sýnt sig að það er fólki mikill léttir að fá loks áreiðanlegar upplýsingar sem byggja á vísindalegri greiningu á vandamálinu,“ segir hann í tilkynningunni.
NeckCare hefur þróað hátæknibúnað sem ætlað er að meta stoðkerfisvanda í hálsi, sem nýtist jafnt til greiningar og endurhæfingar, að sögn Þorsteins Geirssonar, framkvæmdastjóra NeckCare.
„Einkaleyfisvernduð tækni félagsins gerir mögulegt að veita fagaðilum á heilbrigðissviði aðstoð við áreiðanlegt mat á hálsskaða og framkvæmd endurhæfingar þeirra sjúklinga sem um ræðir, s.s. þeirra sem hlotið hafa endurtekna og langvarandi hálsáverka,“ segir hann.
Markmið Heilaheilsu er að bæta þjónustu við fólk sem hefur fengið væga heilaáverka, s.s. heilahristing, sem og við fjölskyldur þeirra, að sögn Ólínu Guðbjargar Viðarsdóttur, sálfræðings og klínísks stjórnanda Heilaheilsu.
„Heilaheilsa veitir faglega og gagnreynda meðferð þar sem áhersla er lögð á að nýta nýjustu þekkingu til að efla heilbrigði heilans og stuðla að bata eftir höfuðáverka. Þverfaglegt samstarf á miðstöðinni mun gefa okkur tækifæri til að meta og meðhöndla á heildrænan afleiðingar heilahristings,“ segir hún, en hægt er að bóka tíma á vef Heilsuverndar.