22 einstaklingar liggja á Landspítala vegna Covid-19. Þrír eru á gjörgæslu og eru þeir allir í öndunarvél, að því er fram kemur á vef spítalans.
Í eftirliti Covid-göngudeildar eru 1.687 þar af 596 börn.
Meðalaldur inniliggjandi er 57 ár, en frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 193 innlagnir vegna Covid-19 á Landspítala.