Spár gera ráð fyrir vestlægri eða breytilegri átt í dag með 3-8 m/s en norðaustan 8-15 norðvestan til. Víða él og hiti í kringum frostmark.
Í kvöld hvessir og fer að snjóa en úrkomulítið sunnan heiða.
Minnkandi norðanátt á morgun og él á Norður- og Austurlandi. Frost þá 0 til 8 stig.