Heilbrigðisyfirvöld skoða að kaupa allt að 1.500 skammta af Covid-lyfinu molnupiravir, sem gert er úr einstofna mótefni. Þetta lyf er í töfluformi sem gerir mönnum kleift að nýta það utan spítalanna. Lyfið er sagt geta fækkað innlögnum verulega.
Greint er frá málinu á vef RÚV.
Þar segir enn fremur að yfirvöld hafi nú þegar keypt lyf til að meðhöndla veiruna á sjúkrahúsum fyrir um 160 milljónir króna í gegnum samevrópsk innkaup.
Breska lyfjaeftirlitið samþykkti notkun lyfsins í upphafi mánaðar og pantaði 480 þúsund skammta, sem væntanlegir eru þangað í byrjun desember.