Urður Egilsdóttir
„Það var metfjöldi í gær, bæði hjá okkur og öllum öðrum,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, í samtali við mbl.is um sýnatöku með hraðprófum.
Skylt er að framvísa neikvæðu prófi á viðburðum með allt að 500 manns.
„Þetta gengur alltaf mjög hratt þó að röðin sé,“ segir Sigríður Dóra og bætir við að hjá heilsugæslunni starfi mjög öflugur og vanur hópur.
Dæmi eru engu að síður um að fólk hafi þurft að bíða í yfir klukkustund eftir því að komast í hraðpróf í dag, samkvæmt upplýsingum mbl.is.
Hún segir að fjöldi starfsmanna fyrir hvern dag sé miðaður við bókanir. „Þá getum við alltaf séð hversu mörgum við eigum von á. Við erum með hörku duglegt fólk sem vinnur baki brotnu við að koma landanum út á lífið.“