Hafist var handa í gær við að rífa hið svonefnda Útvarpshús á Vatnsenda, en það var teiknað af Guðjóni Samúelssyni og reist árið 1929. Búið er að rífa klæðninguna utan af því.
Óvissa skapaðist um framtíð hússins í fyrra eftir að Ríkisútvarpið flutti þaðan allan búnað sinn, en í júlí á þessu ári var gert samkomulag við Kópavogsbæ sem fól m.a. í sér að reynt yrði að varðveita húsið.