Flokksráð Sjálfstæðisflokksins hefur samþykkt stjórnarsáttmálann og aðild að ríkistjórn. Þetta staðfestir Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is.
„Fundurinn gekk vel [...], Þeir sem tóku til máls á fundinum voru almennt mjög jákvæðir í garð samstarfsins“ segir Birgir.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundar á morgun fyrir hádegi, þar verður endanlega ákveðið hverjir gegna hvaða embættum.
Birgir segist ekki geta gefið upp hvaða ráðuneyti Sjálfstæðisflokkurinn fær í nýju ríkistjórninni en samkvæmt heimildum mbl.is þá mun flokkurinn stýra fjármálaráðuneytinu, umhverfisráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu og hluta atvinnumála með nýsköpun ásamt háskólamálum.