Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fráfarandi dómsmálaráðherra, afhenti í dag Jóni Gunnarssyni, nýjum innanríkisráðherra, lyklana að ráðuneyti sínu en Áslaug Arna hefur tekur við nýju ráðuneyti nýsköpunar, iðnaðar og háskóla.
Segir á vef Stjórnarráðs Íslands að verkefni innanríkisráðuneytisins verði í aðalatriðum þau sömu og dómsmálaráðuneytið hefur. Það ráðuneyti heyrir nú sögunni til.
Á árunum 2011 til 2017 var innanríkisráðuneytið eitt af ráðuneytum Stjórnarráðs Íslands. Árið 2017 var tekin ákvörðun um að skipta því í annars vegar dómsmálaráðuneytið og hins vegar í samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið en nú hafa hins vegar aftur verið gerðar breytingar.
Jón kemur til með að vera sá fjórði til að gegna embætti innanríkisráðherra en þrjú höfðu gegnt því áður: Ögmundur Jónasson, þáverandi þingmaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Ólöf Nordal en þær sátu þá báðar á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn.