Orri Páll Jóhannsson var í dag valinn af þingflokki Vinstri grænna til að gegna stöðu þingflokksformanns. Orri Páll er nýr þingmaður hreyfingarinnar en hann var áður varaþingmaður.
Orri Páll tekur við formennskunni af Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, sem verður varaformaður þingflokksins, en hún hefur setið á Alþingi frá 2013.
Frá þessu greinir flokkurinn í tilkynningu. Segir þar enn fremur að Bjarni Jónsson hafi verið valinn ritari þingflokks. Bjarni var áður varaþingmaður en tekur nú sæti á Alþingi.