Skólastjóri Fossvogsskóla, Ingibjörg Ýr Pálmadóttir, lætur af störfum frá og með morgundeginum.
Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir, sem síðastliðið ár hefur starfað á skrifstofu skóla- og frístundasviðs borgarinnar, mun taka tímabundið við starfinu.
Frá þessu greinir sviðsstjórinn Helgi Grímsson í tölvupósti til foreldra.
„Um leið og skóla- og frístundasvið þakkar Ingibjörgu kærlega fyrir hennar störf í þágu skólasamfélagsins í Fossvogsskóla, óskum við henni velfarnaðar í öllu því sem hún tekur sér fyrir hendur. Hafdísi bjóðum við innilega velkomna til starfa og vonum að samstarf heimila og skóla í Fossvoginum verði gott og farsælt,“ skrifar Helgi.
Borgarráð Reykjavíkurborgar samþykkti fyrr í mánuðinum að veita umhverfis- og skipulagssviði borgarinnar heimild til útboðs á lagfæringum og endurbótum á Fossvogsskóla.
Mygla hefur sett húsnæðismál skólans í uppnám frá árinu 2019.