Vörður tryggingafélag hlaut í dag Hvatningarverðlaun jafnréttismála með áherslu á kynjajafnrétti. Þá hlaut Samkaup tvenn verðlaun, annars vegar með áherslu á fjölmenningu og hins vegar með áherslu á atvinnuþátttöku fólks með fötlun/skerta starfsgetu.
Þetta er í áttunda sinn sem hvatningarverðlaunin eru veitt en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti þau. Var þetta fyrsta embættisverk hennar í nýju ráðuneyti.
Hvatningarverðlaun jafnréttismála eiga að vekja athygli á fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel þegar kemur að jafnréttismálum og veita öðrum innblástur til að gera slíkt hið sama.
Í rökstuðningi dómnefndar kemur meðal annars fram að Vörður hafi unnið markvisst að jafnrétti innan fyrirtækisins undanfarin ár og hafi félagið einsett sér að vera til fyrirmyndar í jafnréttismálum í íslensku atvinnulífi. Hlaut þá félagið meðal annars 10 af 10 mögulegum á GemmaQ kynjakvarðanum.
Harpa Víðisdóttir mannauðsstjóri Varðar segir þau hjá fyrirtækinu afar stolt en einnig auðmjúk og þakklát fyrir þessa viðurkenningu. Hún segir verðlaunin mikla hvatningu og eru þau hvergi nærri hætt.
Af þeim þremur verðlaunum sem veitt voru hlaut Samkaup tvenn, annars vegar á sviði fjölmenningar og hins vegar á sviði atvinnumála starfsmanna með skerta starfsorku.
Í rökstuðningi dómnefndar kemur meðal annars fram að fyrirtækið hafi sett sér stefnu, tilgang og markmið í jafnréttismálum þar sem einnig er horft til málefna starfsmanna af erlendum uppruna og starfsmanna með skerta starfsgetu. Þá hefur fyrirtækið lagt af stað í vegferð sem hefur hlotið viðurnefnið Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið.
Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa, segir fyrirtækið nýta viðurkenninguna áfram sem hvatningu og bætir við að jafnrétti fyrir alla sé ákvörðun.