Björn Leví: Alþingi féll á fyrsta prófinu

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata. mbl.is/Kristinn Magnússon

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, sagði Alþingi hafa fallið á fyrsta prófinu og muni þurfa að starfa í skugga efasemda um lögmæti sitt allt kjörtímabilið, í ræðu sinni á Alþingi í kvöld.

Framkvæmd síðustu kosninga hafi verið forkastanleg og að gefist hafi tækifæri til að senda skýr skilaboð um að „ruglið í Norðvesturkjördæmi“ mætti aldrei endurtaka sig, en að svo hafi ekki verið gert.

„Brasað í Borgarnesi“

„Á sama tíma og allir aðrir horfðu forviða á sápuþáttarröðina „Brasað í Borgarnesi“ lokuðu leiðtogar ríkisstjórnarinnar sig af. Í margar vikur pukruðu þau sig saman í ráðherrabústaðnum og leituðu allra leiða til að halda löskuðu hjónabandinu gangandi - fyrir börnin,“ sagði Björn í ræðu sinni.

Hann segir niðurstöðuna úr leynimakki leiðtoga ríkisstjórnarinnar hafa verið ellefu blaðsíðna stjórnarsáttmáli sem hafi verið teygður á sextíu síður til að fela hversu innihaldslaus sáttmálinn sé.

„Allt þokukennd og óskýr loforð sem fela ekki í sér neinar skuldbindingar. Var ekki hægt að gera betur eftir fjögurra ára samband og tveggja mánaða hjónabandsráðgjöf en að búa til samstarf sem spannar litróf stjórnmálanna til að skapa jafnvægi? Hvar er framtíðarsýnin?“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert