Hagkerfið farið af stað af fullum krafti

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hóf mál sitt á Alþingi í kvöld á að óska þjóðinni til hamingju með fullveldisdaginn og sagði að á grundvelli þess gætum við haldið áfram að byggja upp lífskjörin í landinu sem minnst sé á í stjórnarsáttmálanum.

Hann sagði sáttmálann leggja áherslu, líkt og fullveldið lagði grunninn að, á alþjóðlegt samstarf og opið frjálst markaðshagkerfi. Þá lagði Bjarni áherslu á að Ísland yrði utan Evrópusambandsins.

Sterkur grunnur

Bjarni minntist á ákvarðanir síðustu ríkisstjórnar varðandi heimsfaraldurinn og sagðist telja að þær hafi leitt til góðs, meðal annars með sköpun nýrra starfa og batnandi afkomu ríkissjóðs. „Við höfum því sterkan grunn til þess að halda áfram.“

„Þó við séum enn í viðjum faraldursins, upp að einhverju marki, þá skulum við samt taka eftir því hver staðan er hratt að breytast okkur í vil,“ sagði Bjarni og bætt við að hagkerfið væri farið af stað af fullum krafti.

Bjarni sagði Ísland vera í kjör stöðu til þess að vaxa til velsældar, „upphaf þingstarfa er fyrsta skrefið á þeirri leið“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert