Vill sjá eitthvað annað en vonir, drauma og þrár

Inga Sæland.
Inga Sæland. mbl.is/Arnþór

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagðist vilja sjá eitthvað annað á blaði ríkisstjórnarinnar en vonir, drauma og þrár, í ræðu sinni á þingi í kvöld.

„Ég hlustaði á hæstvirtan forsætisráðherra flytja virkilega fallega ræðu, draumkennda ræðu um næstum því ekkert nema vonir og þrár,“ sagði hún í ræðu sinni og bætti við að ljóst sé að stjórnin þurfi aðstoð til þess að átta sig á því hvernig raunveruleg staða samfélagsins er.

Þyki ekki ástæða til að stíga niður á jörðina

„Er ekki dapurt að sitja þannig í fílabeinsturninum að það þyki ekki ástæða til að stíga niður á jörðina til þeirra hinna, sem eiga hér um sárt að binda og eiga ekki fyrir salti í grautinn.“

Hún segir ríkisstjórnina tala um að vera fyrir alla landsmenn en að ríkisstjórnin hafi haft heilt kjörtímabil til þess að sýna hvort hún sé raunverulega fyrir alla landsmenn.

„Hér hefur fátækt fólk beðið allt kjörtímabilið í von um það að hugsanlega myndu þau hætta að skattleggja fátækasta fólkið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert