Karlmaðurinn sem liggur í einangrun á Landspítalanum með Ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar er á áttræðisaldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítala.
Maðurinn var lagður inn á Landspítala eftir að hafa greinst með COVID á heilbrigðisstofnun utan höfuðborgarsvæðisins. Síðdegis í gær kom í ljós að um SARS-CoV2 eða Ómíkron afbrigði veirunnar var að ræða. Uppruni smitsins er ekki ljós en rakningarteymi Almannavarna hefur rakið smitið og eru fleiri sýni í vinnslu. Viðkomandi sjúklingur er fullbólusettur og hefur fengið örvunarskammt, að því er greint frá í tilkynningunni.
Í dag liggja 22 sjúklingar á Landspítala með COVID. 17 eru með virkt smit og í einangrun en 5 eru útskrifaðir á aðrar deildir. Fjórir einstaklingar eru á gjörgæslu og þrír þeirra í öndunarvél.
1.616 eru í símaeftirliti á Birkiborg, þar af 525 börn. Á gulu eru 135 einstaklingar – enginn á rauðu. Í gær komu 11 einstaklingar til mats og meðferðar á göngudeildinni og þrír lögðust inn.
Þá er Geðhæfingardeildin á Kleppi laus úr sóttkví. Ekki greindust fleiri smit en þar hafði einn sjúklingur og einn starfsmaður smitast af veirunni.