Fjórir styrkir voru veittir úr nýjum Menntarannsóknasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins og námu þeir samtals 72,3 milljónum króna en þetta mun vera fyrsta úthlutunin úr sjóðnum.
Þetta kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins.
Af þeim 23 umsóknum sem bárust, þar af 14 um verkefnastyrki og 9 um doktorsnemastyrki, urðu fjórar fyrir valinu.
„Markmið sjóðsins er að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna hér á landi, auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og umbóta í skólastarfi og styðja við framkvæmd menntastefnu til 2030,“ segir í tilkynningunni.
Hæsta styrkinn hlaut hún Kristjana Stella Blöndal fyrir verkefnið Margbreytileiki brotthvarfsnemenda: Raddir nemenda, en sá nam 24,8 milljónum króna. Þá hlaut Kathryn Margaret Crowe 23,7 milljóna króna styrk fyrir verkefnið Orðaheimurinn á Íslandi.
Styrkirnir til doktorsnemanna voru einnig umfangsmiklir en María Jónsdóttir hlaut 15,9 milljónir fyrir verkefnið Stytting námstíma stúdentsprófsbrauta: Áhrif á inntak bóklegs náms á framhaldsskólastigi og áframhaldandi nám á háskólastigi. Síðast en ekki síst var það hún Heiður Hrund Jónsdóttir sem hlaut 7,9 milljónir fyrir langtíma rannsókn meðal framhaldsskólanema, Sjálfsmynd og skólaviðhorf nemenda í tengslum við skuldbindingu þeirra og brotthvarf frá námi.
Fagráð sjóðsins er skipað af þeim Gunnlaugi Magnússyni, Pasi Sahlberg, Tine Nielsen, Möru Westling Allodi og fer Júlíus K. Björnsson með formennsku.
Hægt er að kynna sér verkefnin og styrkhafana nánar á vef Rannís.