Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir vinnur nú að nýju minnisblaði sem hann hyggst skila til heilbrigðisráðherra um helgina. Hann gerir ekki ráð fyrir hertum aðgerðum, þrátt fyrir óvissu í tengslum við Ómíkrón-afbrigðið.
Þetta staðfestir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi almannavarna. Fyrst var greint frá því að Þórólfur ynni að minnisblaðinu á vísi.
Núgildandi reglugerð rennur út um miðja næstu viku og því kominn tími til að Þórólfur skili inn minnisblaði um framhaldið.
Verður þetta fyrsta minnisblaðið frá Þórólfi sem Willum Þór Þórsson tekur á móti sem heilbrigðisráðherra.