Rennslið þrefaldast á þremur sólarhringum

Mynd tekin í gær af suðvestursvæði Grímsvatna.
Mynd tekin í gær af suðvestursvæði Grímsvatna. Ljósmynd/Jón Grétar Sigurðsson

Íshellan yfir Grímsvötnum hefur sigið um rúma sautján metra frá því fyrst fór að bera á sigi fyrir um níu dögum.

Þetta sýna nýjustu mælingar. Vatnamælingamenn Veðurstofunnar mældu rennsli í Gígjukvísl um klukkan 11 í morgun og nam það þá tæplega 930 rúmmetrum á sekúndu. Hafði það þá nær þrefaldast á um þremur sólarhringum.

Rennslið er tífalt á við venjulegt rennsli árinnar á þessum árstíma.

Rafleiðni, sem gefur til kynna magn hlaupvatns í ánni, hefur einnig aukist undanfarna daga og fer hækkandi. Gas mælist í litlu magni við jökulsporðinn og þykir vel innan hættumarka.

Tilbúin í gos

Gosið hefur á fimm til tíu ára fresti úr Grímsvötnum og kemur vísindamönnum saman um að mælingar sýni að Grímsvötn séu tilbúin að gjósa, eins og mbl.is hefur áður fjallað um.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að ekkert sé þó hægt að fullyrða um að eldgos verði samfara þessu hlaupi og fylgjast þurfi grannt með skjálftavirkni í Grímsvötnum sem geti gefið vísbendingar um að gos sé yfirvofandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert