Sigríður Sigurðardóttir hefur verið ráðin sem leiðtogi snjallvæðingar og stafrænnar þróunar hjá Veitum. Hún hefur starfað hjá Veitum síðastliðin þrjú ár við þróun og innleiðingu hermilíkana og stafrænna tvíbura af dreifikerfum Veitna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum.
Sigríður hlaut doktorsgráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2016. Doktorsverkefnið, sem var unnið í samstarfi við Matís, fjallaði um greiningu fiskveiðistjórnunar með líkönum og hermun.
Hluti rannsóknarinnar var unninn við Berkeley háskóla í Kaliforníu sem og Chalmers tækniháskólann í Gautaborg. Að auki er Sigríður með meistara- og bakkalárgráðu í iðnaðarverkfræði frá HÍ.
Áður en hún gekk til liðs við Veitur starfaði hún við áhættustýringu hjá Arion banka en lengst af starfaði hún hjá Matís, einkum við ýmis rannsóknarverkefni í sjávarútvegi.