Smáhýsi þurfa ekki að víkja

Horft inn Hesteyrarfjörð, en handan fjalla sést niður í Aðalvík.
Horft inn Hesteyrarfjörð, en handan fjalla sést niður í Aðalvík.

Smáhýsi í Aðalvík þurfa ekki að víkja. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur úrskurðað í tveimur málum er varða meintar óleyfisframkvæmdir á Látrum í Aðalvík. Svæðið er hluti af friðlandinu á Hornströndum.

Annars vegar var hafnað kröfu um að felld verði úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúa Ísafjarðarbæjar um að synja kröfu um að viðbygging við svonefnt Sjávarhús á Látrum í Aðalvík verði fjarlægð. Hins vegar var hafnað kröfu um að fella úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans um að synja kröfu um að fimm smáhýsi, sem staðsett eru í fjörukambinum á Látrum í Aðalvík verði fjarlægð.

Athugasemdir og kærur

Í lýsingu ÚUA í málinu varðandi smáhýsin kemur fram að kærandi hafi um langt skeið komið á framfæri athugasemdum við Ísafjarðarbæ vegna meintra óleyfisbygginga, þ.e. svonefnds Sjávarhúss, viðbyggingar við það hús, sem og smáhýsa/áhaldahúsa í fjörukambinum. Nefndin hefur sömuleiðis áður haft til úrlausnar mál kæranda er þetta varðar og eru nefndir úrskurðir frá síðustu árum.

Hér má sjá kort af Hornströndum en Aðalvík er vestantil …
Hér má sjá kort af Hornströndum en Aðalvík er vestantil á Hornströndum. Ljósmynd/Wikimedia

Í kærunni er bent á að leyfi allra landeigenda þurfi til að raska friðlandinu. Beri byggingarfulltrúa að leita leiðsagnar Umhverfisstofnunar áður en veitt sé leyfi til framkvæmda. Það hafi ekki verið gert og byggingarleyfi vegna smáhýsanna ekki verið gefið út.

Í úrskurðinum segir m.a. að telja verði það mat byggingarfulltrúa að beita ekki þvingunarrúræðum stutt efnislegum rökum. Þar segir einnig að þótt leyfi Ust. þurfi til allrar mannvirkjagerðar á Látrum hafi stofnunin ekki nýtt sér þvingunarúrræði sem hún hafi samkvæmt lögum til að knýja á um úrbætur vegna smáhýsanna. Stofnuninni sé þó kunnugt um þau.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert