Tók mynd af dreng á klósetti í skammtímavistun

Héraðsdómur Reykjaness.
Héraðsdómur Reykjaness. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kona var í síðasta mánuði fundin sek í Héraðsdómi Reykjaness um að hafa tekið mynd af einhverfum dreng sem var á klósetti og var í skammtímavistun þar sem konan starfaði. Sendi konan jafnframt myndina á þáverandi kærasta sinn, en það var hann sem lét bæjaryfirvöld vita af myndsendingunni. Leiddi það til þess að konunni var sagt upp og að lokum til ákæru og nú dóms.

Í dómi héraðsdóms kemur fram að konan hafi starfað á skammtímavistun fyrir börn og ungmenni með fötlun. Játaði hún að hafa tekið myndina og sent hana til kærasta síns og að það hafi verið í hugsanaleysi og um væri að ræða alvarlegan dómgreindarbrest af hennar hálfu.

Eftir að maðurinn hafði látið bæjaryfirvöld vita af myndsendingunni, um fimm mánuðum eftir að konan sendi honum myndina, var konan kölluð á fund fjölskyldusviðs. Þar játaði hún að hafa tekið og sent myndina og var í kjölfarið fyrirvaralaust sagt upp störfum. Sagðist konan ekki hafa sent myndina á aðra eða myndir af öðrum börnum. Aðeins hefði verið um að ræða mynd í spjallskilaboðum til þáverandi kærasta hennar.

Við yfirheyrslu hjá lögreglu og fyrir dómi sagði konan að daginn sem myndin hefði verið tekin hafi hún rifist mikið við kærastann og hann hafi hringt stanslaust í hana og hótað með skilaboðum. Hún hafi verið í vinnunni og lítið getað svarað honum, en svo gert það meðan drengurinn var á klósettinu. Þá hafi hún sagt kærastanum að hún gæti ekki rætt við hann vegna vinnu en að kærastinn hafi ekki trúað að hún væri í vinnunni. Hafi hann óskað eftir sönnunum að hún væri í vinnunni og nefnt að hún gæti tekið mynd af því sem hún væri að gera, en hún neitað því. Þá hafi hann „orðið sturlaður“ og sagt að hún myndi hafa verra af ef hún tæki ekki myndina. Í framhaldinu hafi hún tekið umrædda mynd og sent hana.

Sagði konan fyrir dómi að þau hefðu átt í stormasömu sambandi og að maðurinn hefði beitt sig bæði líkamlegu og andlegu ofbeldi. Þá hafi hann meðal annars hótað að koma á vinnustaðinn til hennar. Síðar hafi hún svo kært hanna fyrir ofbeldi, en einmitt sama mánuð lét maðurinn bæjaryfirvöld vita af myndsendingunni. Sagði hún að það væri hefnd af hans hálfu fyrir kæruna.

Fyrir dómi sagði maðurinn að það gæti vel hafa verið að hann hafi beðið konuna um að fá mynd senda, en að hann kannaðist ekki við að hafa hótað henni.

Konan sagði myndsendinguna því hafa verið neyðvörn og að því ætti að falla frá sök í málinu. Dómurinn var því ekki sammála og sagði að sannað væri að hún hefði gerst sek um að taka myndina og senda hana. Þannig væri hún fundin sek um brot gegn barnaverndarlögum. Hins vegar var hún ekki fundin sek um hegningarlagabrot og að hún hafi misnotað stöðu sína í opinberu starfi.

Vísað var til þess að hún hefði í kjölfarið misst vinnuna og að hún hefði ekki áður sætt refsingu. Þá hafi ekkert komið fram um að hún hafi haft illt í huga gagnvart drengnum sem hún tók mynd af. Taldi dómurinn því rétt að fresta ákvörðun um refsingu skilorðsbundið og að hún falli niður að tveimur árum liðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert