Komust af án rafmagns í sjö tíma

Droplaugarstaðir.
Droplaugarstaðir. mbl.is/Golli

Allt gekk að óskum á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum í nótt að sögn Jórunnar Frímannsdóttur forstöðumanns, en rafmagnslaust var frá miðnætti og til klukkan sjö í morgun. Þetta er að vísu ekki í fyrsta sinn sem að rafmagnið fer af heimilinu en þó er ekki algengt að það rafmagnsleysi vari í svo langan tíma. Þurfti því að grípa til ráðstafana.

„Við auðvitað gátum lifað þetta af en það er frekar erfitt þegar þetta er orðinn svona langur tími. Venjulega erum við góð ef rafmagnið fer í tvo til þrá tíma,“ sagði Jórunn í samtali við mbl.is.

Rúv greindi frá því í gær að hjúkrunarheimilið yrði án rafmagns í nótt sem kæmi sér alls ekki vel í ljósi þeirrar starfsemi sem fer þar fram. Reiða íbúarnir sig meðal annars á súrefnisstuðning og bjöllukerfi sem er háð rafmagni.

Í ljósi stöðunnar var mönnun á næturvaktinni þrefölduð og litið var inn til sjúklinganna með reglulegu millibili. 

Vill að Orkuveitan bjóði upp á úrræði

Einungis ein lítil varaaflstöð er tilstaðar á Droplaugarstöðum vegna MND deildarinnar en hún er þó langt frá því að vera nógu öflug til að halda úti rafmagni á öllu heimilinu. Að sögn Jórunnar myndi slík rafstöð eflaust kosta einhverja tugi milljóna og er hún efins um hve gáfuleg slík fjárfesting væri.

Telur Jórunn mun skynsamlegra að Orkuveita Reykjavíkur bjóði upp á úrræði fyrir þau fyrirtæki eða stofnanir sem þurfa að halda úti sólarhrings starfsemi og hafa ekki við rafmagnsleysi í svo langan tíma.

Batteríin duga skammt

Að sögn Jórunnar eru nauðsynleg tæki á hjúkrunarheimilinu hlaðinn varabatteríum en þau duga hins vegar skammt og halda ekki út sjö klukkustunda rafmagnsleysi. Jórunn bætir þó við að ef ástand íbúa hefði verið metið þannig að þeim myndi skapast mikil ógn af rafmagnsleysinu hefðu þeir verið færðir á aðra stofnun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert