108 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær, þar af 56 utan sóttkvíar. Þá greindust tvö smit á landamærunum. Um er að ræða bráðabirgðatölur.
Í dag eru 1470 í einangrun og 1888 í sóttkví. Tíu einstaklingar hafa verið greindir með Ómíkron-afbrigðið á Íslandi. Eins og áður eru öll jákvæð Covid-19 sýni á Íslandi raðgreind og öll smit rakin.
Smitrakning gengur vel, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Fjöldi PCR sýna sem tekin voru í gær kemur fram á covid.is þegar heimasíðan verður uppfærð nk. mánudag.