Jón Gunnarsson innanríkisráðherra hefur sett á fót starfshóp sem ætlað er að rannsaka starfsemi barnaheimilinu í Richardshúsi á Hjalteyri, sem starfrækt var á árunum 1972-1979, væri kannaður.
Þetta kom fram í máli Jóns í Vikulokunum á Rás 1 í morgun.
Ráðherra sagði að hópurinn muni taka til starfa eftir helgi eða verða kynntur þá.
„Þetta er mikið pandórubox sem verið er að opna og við þurfum að stíga varlega til jarðar en gríðarlega mikilvægt að við þessu sé brugðist,“ sagði Jón.
Starfsemi barnaheimilis á Hjalteyri hefur verið víða til umfjöllunar síðustu daga, eða eftir að fólk sem þar dvaldist í æsku steig fram í þætti Stöðvar 2 og greindi frá harðræði sem það varð fyrir. Hjalteyri er í Hörgársveit og nú hefur sveitarfélagið óskað eftir því að ríkið rannsaki þessi mál.