Hópur fólks kom saman á Austurvelli í dag þar sem samstöðufundur með konum á flótta var haldinn. Konurnar sem samstöðufundurinn beinir helst sjónum sínum að eru fjórar til fimm talsins en skipuleggjendur segja að vel geti verið að fleiri konur í sömu stöðu séu úti í samfélaginu.
„Ég held að fólki sé bara misboðið. Það heyrir af málum þessara kvenna í fjölmiðlum. Það kemur fram hjá lögmönnum þeirra hver staða þeirra er og ég held að fólk vilji bara safnast saman og sýna breiða samstöðu með þessum konum og fleirum í þeirra stöðu,“ sagði Eyrún Ólöf Sigurðardóttir, einn skipuleggjenda, við mbl.is fyrr í dag.
Konunum hefur verið synjað um efnislega meðferð umsóknar sinnar um alþjóðlega vernd af þeim sökum að þær hafa fengið vernd í Grikklandi. Þar eru flóttamannamál í miklum ólestri.