Fremur kalt er í veðri í dag en veðrið er fallegt og mælir Veðurstofa Íslands með útiveru. Ljósmyndari Morgunblaðsins náði myndinni hér að ofan við Reykjavíkurtjörn í morgun.
Mesta frost vetrarins mældist á Mývatni í nótt eða 21,4 stig.
„Það er áfram kalt í dag og frostið getur orðið talsvert í kuldapollum. Dagurinn í dag er tilvalinn til að njóta útivistar í vetrarkyrrð,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.