Nýjustu mælingar benda til þess að íshellan í Grímsvötnum hafi sigið um rúmlega 70 metra frá frá því fyrst fór að bera á sigi en það er 20 metrum meira en í gærkvöldi.
Hulda Rós Helgadóttir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands gerir ráð fyrir því að hlaupið í Gígjukvísl nái hámarki í dag. „Það er spáin allavega,“ segir Hulda í samtali við mbl.is
Mælingar á rennsli í Gígjukvísl standa nú yfir en sú vinna mun taka nokkurn tíma. Hulda gerir ráð fyrir að tölur úr þeim mælingum muni liggja fyrir eftir hádegi í dag.
Jarðfræðingar urðu fyrst varir við að íshellan í Grímsvötnum væri farin að síga 24. nóvember og hafa verið í viðbragðsstöðu vegna goss síðan þá.
Jarðfræðingurinn Ari Trausti Guðmundsson sagði í viðtalsþættinum Sprengisandi í dag að eldgos í Grímsvötnum sé „í spilunum“ þar sem eldstöðin sé orðin „ófrísk“. Síðast gaust í Grímsvötnum árið 2011.
Hulda segir líkurnar á gosi ekki hafa breyst frá því í gær. „Það er bara svipað og áður.“