Jólatrjáasala Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur á Flugvallarvegi 7 opnaði í gær en salan hefur gengið sæmilega þessa helgi að sögn Ingva Stígssonar gjaldkera. Í fyrra náðu færri að kaupa en vildu en sveitin tók fleiri tré inn í ár til að anna eftirspurninni.
„Við kláruðum tveimur dögum fyrir aðfangadag í fyrra minnir mig. Við tókum að vísu meira inn í ár svo vonandi kemur fólk ekki að tómum kofanum en reynslan sínir að það er betra að vera í fyrra fallinu og geyma þetta ekki fram á síðustu stundu.“
Ef marka má fyrri ár verður mest að gera næstu helgi í jólatrjáasölunni. „Það er svona oftast sú helgi sem stærst hjá okkur,“ segir Ingvi en sveitin býður einnig upp á netverslun með heimsendingu.
Þó netverslunin hafi notið nokkurra vinsælda í fyrra selur verslunin á Flugvallarvegi ennþá meirihluta trjáa.
„Flestir vilja fá tækifæri til að skoða tréð, en þetta er ágætis hlutfall sem pantar og þá reynum við að velja mjög fallegt tré“.
Í jólatrjáasölu Flugbjörgunarsveitarinnar er boðið upp á nordmannsþin (normannsþin), stafafuru, blágreni og rauðgreni. Nordmannsþinurinn kemur frá Danmörku en íslensku jólatrén, þ.e. grenið og furan, koma frá Skógræktarfélagi Íslands.
Jólatrjásalan á Flugvallarvegi verður opin til klukkan 22 alla daga fram að aðfangadegi en þá lokar hún klukkan 13.