Björgunarsveitir hafa alls farið í 50 útköll í dag vegna veðurs. Á höfuðborgarsvæðinu hafa þakplötur og vinnupallar fokið sem og síðustu útistandandi trampólín þessa árs.
Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að búið sé að kalla út björgunarsveitir frá Snæfellsnesi og austur fyrir fjall í dag en gul veðurviðvörun er í gildi fyrir stóran hluta landsins.
Flest verkefnin á höfuðborgarsvæðinu snúa að þakplötum sem hafa fokið í snörpum vindhviðum sem og verkefni á byggingasvæðum.
Þar er mikið af lausamunum sem fjúka en Davíð segir verktaka fljóta að festa það sem þarf.