Jarðskjálfti af stærð 2,8 reið yfir rétt norðan við Bárðarbungu í Vatnajökli rétt fyrir klukkan 12:25 í dag. Í morgun urðu tveir skjálftar rétt við Grímsfjall, annar mældist 3,6 og hinn 2,3.
Veðurstofan hækkaði í dag litamerkingu vegna Grímsfjalla í appelsínugult, en með því telur Veðurstofan að eldstöðin sýni aukna virkni og vaxandi líkur séu á gosi. Þá kom í ljós um helgina að nýr sigketill hefði myndast suðaustan við Grímsfjall.
Veðurstofan fer yfir mál sem tengjast mögulegu eldgosi í Grímsvötnum á degi hverjum, en næsti samráðsfundur verður haldinn klukkan 14 í dag.