„Gríðarlegt tjón“ í ráðhúsinu á Akureyri

Slökkviliðsmenn að störfum í ráðhúsinu í morgun.
Slökkviliðsmenn að störfum í ráðhúsinu í morgun. Ljósmynd/Facebooksíða Akureyrarbæjar

Talið er vatnskrani í eldhúsi hafi gefið sig á fjórðu hæð ráðhúss Akureyrarbæjar með þeim afleiðingum að vatn rann á milli hæða.

Að sögn Magnúsar Smára Smárasonar, aðstoðarvarðstjóra hjá slökkviliðinu á Akureyri, urðu starfsmenn ráðhússins varir við lekann þegar þeir komu þangað upp úr klukkan hálfátta í morgun. Voru þeir búnir að skrúfa fyrir þegar slökkviliðið mætti á vettvang.

„Þetta er gríðarlegt tjón. Þetta byrjar á efstu hæð og lekur á milli hæða. Það mun líða talsverður tími þangað til hægt er að meta rauntjónið sem varð í þessum atburði,“ segir Magnús Smári, spurður út í tjónið.

Meðal annars skemmdist bæði gólfefni og loftplötur. Starfsfólk ráðhússins tók þátt í að þurrka upp vatnið.

Slökkviliðið lauk störfum á vettvangi upp úr klukkan níu í morgun.

Að sögn Magnúsar Smára verða kallaðir út verktakar sem munu fínhreinsa og þurrka húsið, meðal annars með blásurum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert