Heildarkostnaður vegna undirbúnings og uppsetningar pálmatrés í Vogabyggð nemur 8,9 milljónum kr. Þetta kemur fram í svari menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins.
Morgunblaðið greindi frá því í október að fyrirhuguðum pálmatrám í Vogabyggð hefði verið fækkað úr tveimur í eitt. Var þetta gert í samráði við höfund listaverksins. Hins vegar stóðst verkið raunhæfismat sem framkvæmt var í kjölfar samþykktar borgarráðs.
Pálmatré, tillaga þýska listamannsins Karin Sander, bar sigur úr býtum í samkeppninni um útilistaverk í Vogabyggð. Niðurstaða dómnefndar var kynnt á Kjarvalsstöðum 29. janúar 2019. Verkið gerir ráð fyrir að tveimur pálmatrjám sé komið fyrir í stórum turnlaga gróðurhúsum og að frá þeim stafi ljós og hlýja.
Fram kemur í svari menningarsviðsins að gert sé ráð fyrir að framkvæmdin við listaverkið fylgi frágangi opinna svæða í hverfinu og sé hönnun torgsins og uppbygging þess háð annarri uppbyggingu við torgið. Það sé unnið í samráði við listamanninn og lóðareigendur.
Þá segir að miðað við nóvember 2021 sé heildarkostnaður vegna undirbúnings 8.865.858 kr., sem er m.a. kostnaður vegna forvals, kynningarfunda, dómnefndar og þóknunar listamanna. Þá segir að kostnaðaráætlun vegna þessara þátta hafi verið um 9,2 milljónir kr.
Þá hafi fallið til 1,2 milljóna kr. kostnaður vegna raunhæfismats sem var framkvæmt af umhverfis- og skipulagssviði.