„Þetta var nú ekki svo mikið að menn væru eitthvað að kippa sér upp við þetta þannig séð miðað við það sem við erum vön,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, í samtali við mbl.is en jarðskjálfti af stærðinni 3,1 varð 4,8 km norðaustur af Grindavík um klukkan 10.45 í morgun.
Þá segir Fannar að skjálftinn hafi ekki verið verulegur. Einhverjir hafi fundið fyrir honum en að þeir sem voru á ferðinni og sátu ekki kyrrir hafi ekki orðið varir við hann. „Þannig að þetta var ekkert stærra en það,“ segir Fannar.
„En auðvitað höfum við nú fengið frið fyrir þessu í nokkrar vikur þannig að því leyti var ekkert endilega notalegt að fá þennan skjálfta,“ segir Fannar og bætir við:
„En síðan er okkur sagt að þetta hafi verið stakur skjálfti og ekkert tengdur neinum umbrotum heldur eitthvað sem má búast við og gerist stundum þannig að við erum í sjálfu sér alveg róleg yfir þessu.“
Að sögn Sigþrúðar Ármannsdóttur, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands, varð skjálftinn ekki nálægt gosstöðvunum í Geldingadölum og tengist þeim því ekki neitt. Þá varð hann oftan á þekktri sprungu og því ekkert óvenjulegt við hann.