Milla Ósk Magnúsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra og er þegar tekin til starfa í heilbrigðisráðuneytinu. Milla Ósk var áður aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Milla starfaði hjá Ríkisútvarpinu í áratug sem fréttamaður og aðstoðarframleiðandi frétta, auk þess að sinna dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi, áður en hún hóf störf sem aðstoðarmaður ráðherra.
Þá var hún um skeið varaformaður Félags fréttamanna á Ríkisútvarpinu. Milla Ósk er með ML-próf í lögfræði frá Háskóla Reykjavíkur þar sem hún sérhæfði sig í fjölmiðlarétti, auk þess að leggja áherslu á persónuupplýsinga- og vinnurétt.