Slit hefur orðið á landshring Mílu á Norðurlandi, norðan við Hofsós, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.
„Þetta hefur lítil áhrif og það verður byrjað strax að gera við um leið og við erum búin að staðsetja bilunina nákvæmlega,“ segir Sigurrós Jónsdóttir, samskipta- og markaðsstjóri Mílu, í samtali við mbl.is og bætir við að þegar það er slit á landshring sé farið strax í viðgerðir og muni viðgerðin taka eins stuttan tíma og hægt er.
Aðspurð segir Sigurrós að líklegast hafi strengurinn slitnað í Hofsá.
Að sögn Sigurrósar mun bilunin hafa takmörkuð áhrif, öll sambönd séu inni en mögulega getur eitthvað hægst á þeim þar sem þau þurfi að fara lengri leið. Landshringurinn sem er ljósleiðarastofnhringur Mílu um landið er hringtengdur og fara því samböndin hina leiðina ef hann slitnar og því verða yfirleitt ekki miklar truflanir á samböndum ef hann slitnar.
Uppfært kl. 23:04: Viðgerð er lokið á neðangreindu strengsliti sem varð á landshring Mílu á Norðurlandi seinnipartinn í dag. Viðgerð lauk fyrir kl. 22:00 í kvöld, að því er segir í tilkynningu frá Mílu.