UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fagnar 75 ára afmæli sínu í dag en þó í skugga heimsfaraldurs. Barnahjálpin segir faraldurinn hafa grafið undan nærri öllum þeim framförum sem unnist hafa undanfarna áratugi í þágu barna. Segir í tilkynningu að 100 milljón fleiri börn búi nú við fátækt heldur en fyrir heimsfaraldurinn.
Þá er vísað til nýútkominnar skýrslu UNICEF þar sem fjallað er um hvernig faraldurinn hefur grafið undan áratuga framförum í þágu réttinda barna. Afleiðingarnar séu aukin fátækt, skert heilbrigðisþjónusta. Aðgengi að menntun, næringu, barnavernd og geðheilbrigðisþjónusta hafi þá einnig raskast. Réttindum barna er því ógnað nú sem aldrei fyrr.
Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF segir í tilefni útgáfu skýrslunnar að UNICEF hafi í gegnum tíðina lagt grunninn að heilbrigðara og öruggara umhverfi fyrir börn um allan heim. Það hafi skilað sér í frábærum árangri fyrir milljónir barna. Þessum árangri sé nú ógnað.
Heimsfaraldurinn sé stærsta ógnin við framfarir í þágu barna í 75 ára sögu samtakanna. Fleiri börn búi nú við hungur, ofbeldi, misnotkun, fátækt, skert aðgengi að menntun, heilbrigðisþjónustu, matvælaöryggi og grunnþjónustu, bætti hún þá einnig við.
Í skýrslunni kemur fram að þeim börnum sem nú búa við fjölþætta fátækt hafi fjölgað um 100 milljónir. 10 prósentustiga aukning frá árinu 2019. Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar er áætlað að það muni taka sjö til átta ár að ná jafnvægi í stöðuna.