Alls greindust 149 með kórónuveiruna innanlands í gær. Þar af voru 83 óbólusettir. 69 voru í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram á Covid.is.
Sjö greindust á landamærunum. 1.403 eru núna í einangrun, sem er fjölgun um 80 á milli daga. 1.674 eru í sóttkví.
Tekin voru 3.565 sýni, þar af 1.606 hjá fólki með einkenni.
21 liggur á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af 5 á gjörgæslu.
997 eru í einangrun á höfuðborgarsvæðinu, sem er fjölgun um 59 á milli daga. Á Suðurnesjum er 151 í einangrun og 60 á Suðurlandi, sem er álíka mikið og í gær.
Börnum í einangrun á aldrinum 6 til 12 ára fjölgar um 31 á milli daga og eru núna 313 á þeim aldri í einangrun. Börnum í einangrun á aldrinum 13 til 17 ára fjölgar um 10 á milli daga. 62 börn á þeim aldri eru núna í einangrun.