Alls liggja 19 sjúklingar á Landspítala vegna Covid-19. Meðalaldur þeirra er 63 ár. Fimm eru á gjörgæslu, þar af fjórir í öndunarvél.
Tveir þeirra sem eru á gjörgæslu eru óbólusettir.
1.407 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 461 barn, að því er segir í tilkynningu.
Frá upphafi fjórðu bylgju hafa 219 verið lagðir inn á Landspítalann vegna Covid-19.